Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 17. apríl 2013
Prenta
Skráning í mat rennur út í kvöld.
Þar sem það er erfitt að kyngja því að það verði jafn bágborin þátttaka á aðalfund Ferðamálasamtakanna sem haldinn verður um helgina í Félagsheimilinu í Trékyllisvík, og það lítur út fyrir miðað við skráningu í mat, þá er ítrekað að frestur til að tilkynna skráningu í mat fyrir aðalfundarhelgi Ferðamálasamtakanna rennur út í kvöld. Þetta þarf að gera tíman lega vegna þess að það er ekki hlaupið að því að gera mikil innkaup fyrir skipuleggjendur eldhússins. Í mötuneytinu verður boðið upp á Kvöldverð á föstudagskvöldið verð kr.2.500 , morgunverð laugardag og sunnudag verð kr.1.200, og hátíðarkvöldverð á laugardagskvöld verð kr. 5.500. Skráning er á netfangið vestfirðir@gmail.com eða í síma 897-6525.