Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 10. nóvember 2015 Prenta

Skúli mennski snýr aftur á Strandirnar föstudaginn 13. nóvember.

Skúli mennski.
Skúli mennski.

Föstudaginn 13. nóvember mun ísfirski tónlistarmaðurinn Skúli mennski snúa aftur á Strandirnar og skemmta eins og honum einum er lagið. Tónleikarnir fara fram á Malarkaffi á Drangsnesi og opnar húsið kl. 20:00 en Skúli stígur á svið um klukkutíma síðar. Miðaverð er 2000 kr. og barinn opinn hjá vertunum á Malarkaffi sem að þessu sinni bjóða upp á færeyskan bjór á sérstöku tilboðsverði.

Með Skúla í för verður bandaríski tónlistarmaðurinn Kyle Woolard en hann  er forsprakki hljómsveitarinnar The Anatomy of Frank sem hefur sótt Ísland heim síðustu ár til þess að taka þátt í Airwaves ævintýrinu. Sveitin var stofnuð árið 2011 og hefur sent frá sér plöturnar Pangaea og North America sem kom út í október síðastliðnum.
Strandamenn og aðrir einlægir aðdáendur Skúla mennska og góðrar skemmtunar látið ykkur ekki vanta föstudaginn 13. nóvember á Malarkaffi!

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Sundlaugin Krossnesi-04-10-2006.
  • Hilmar Hjartarson tók á móti gestum með harmonikkuleik.
  • Hafís útaf Reykjanesströnd.
  • Ragnheiður Edda Hafsteinsdóttir útibústjóri útibús. ksn og  póstmeistari skálar við Jón Guðbjörn sextugann.
  • Reykjarfjörður-11-09-2002.
  • Unnið við kjöljárn,Ástbjörn og Sigursteinn.18-12-2008.
Vefumsjón