Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 18. september 2010
Prenta
Snjóaði í fjöll.
Það snjóaði í fjöll í fyrsta sinn í nótt hér í Árneshreppi.
Snjór náði niður í allt að 400 til 500 metra hæð,eru fjöll því talin flekkótt.
Hitinn fór niður í 3,7 stig á veðurstöðinni í Litlu-Ávík í nótt og er það minnsti hiti sem hefur mælst þar hingað til í haust.
Skúraveður hefur verið í morgun á láglendi,en slyddu eða snjóél til fjalla.