Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 4. apríl 2017
Prenta
Snjókoma- Flugi aflýst.
Það er búin að vera bullandi snjókoma síðan í gærkvöld, eftir rigninguna og slydduna í gær. Fólk er að vona að þetta sé páskahretið sem er komið svona viku fyrir páska. Mikið dimmviðri er og nú hefur flugi verið aflýst til Gjögurs. Athugað verður með flug á morgun um hádegi. Vika er síðan að var flogið síðast á Gjögur. Samkvæmt veðurspá verður veður sæmilegt og úrkomulítið fyrri partinn á morgun.