Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 27. janúar 2012
Prenta
Snjómokstur – Flug.
Byrjað var að moka vegi hér innansveitar í gær eftir að veðri slotaði,talsverður snjór er eftir norðanáhlaupið,en mismikið. Klárað verður að moka í morgun Norðurfjörður - Gjögur,enda flug í dag en ekki var hægt að fljúga í gær vegna veðurs,en ætti að takast í dag. Flugfélagið Ernir áætla brottför kl: 11.00 úr Reykjavík.