Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 12. desember 2019
Prenta
Staðan á Vestfjörðum kl. 07:00
Tilkynning frá Orkubúi Vestfjarða.
Rafmagn er komið frá byggðalínunni og er Vesturlína komin í rekstur. Breiðadalslína 1 er enn biluð og er varaflsstöðin í Bolungarvík því keyrð áfram. Varaaflskeyrslu hefur verið hætt á Hólmavík og á Reykhólum. Rafmagn er komið á Króksfjarðarnes og Gilsfjörð og á allt norðan Þorskafjarðar eftir því sem best er vitað. Viðgerð stendur yfir á Borðeyrarlínu og er búist við að línan verði komin í lag fyrir hádegi. Verið er að reyna að koma rafmagni á Árneshrepp.