Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 28. október 2009 Prenta

Stefnumótun Ferðamálasamtaka Vestfjarða.

Hótel Djúpavík.
Hótel Djúpavík.

Ferðaþjónusta á Íslandi og Vestfjörðum hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og er mikilvægi hennar að aukast hratt í vestfirsku samfélagi en ætla má að vægi ferðaþjónustunnar í umfangi atvinnulífisins á Vestfjörðum sé í kringum 7,5% og má áætla að vöxturinn bara sl. ár sé hátt í 30 %.

Á allra næstu vikum og mánuðum munu Ferðamálasamtök Vestfjarða standa fyrir vinnufundum með ferðaþjónustuaðilum og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu um alla Vestfirði. Markmiðið með fundunum er að virkja hagsmunaaðila í ferðaþjónustu til að leggja sitt af mörkum í að meta stöðu ! ferðaþjónustu á Vestfjörðum og taka þátt í að móta framtíðarsýn hennar. Fundirnir eru öllum opnir og eru kjörið tækifæri til að hafa áhrif á framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

Fyrir stefnumótuninni standa Ferðamálasamtök Vestfjarða, en samtökin eru grasrótahreyfing í ferðaþjónustu um alla Vestfirði. Ferðamálasamtökin njóta stuðnings Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Markaðsstofu Vestfjarða og Menningarráðs Vestfjarða við framkvæmd vinnufundanna og úrvinnslu þeirra. Stefnumótunarvinnan er fjármögnuð af Ferðamálasamtökunum og samstarfsaðilum ásamt Vaxtarsamningi Vestfjarða.
Vinnufundirnir samanstanda af stuttum kynningum um stö! ;ðu ferðaþjónustunar á Íslandi og á Vestfjörðum, en megin efni fundanna eru vinnuhópar þar sem þátttakendum gefst kostur á að hafa áhrif í litlum hópum þar sem unnið er að afmörkuðum málefnum ferðaþjónustunnar. Boðið er uppá léttar hressingar á meðan fundinum stendur.
Fundarherferðin hefst í Bjarkalundi, við Reykhóla þann 7.nóvember nk. og er dagskrá fundanna er sem hér segir:

Dagsetning Staður Tími
7.nóv Bjarkalundur 13.00-16.00
9. nóv Sjóræningjahúsið, Patreksfirð! ;i 18.00-21.00
11. nóv Þróunarsetrið Ísafirði 18.00-21.00

Ferðamálasamtökin leggja áherslu á víðtæka samvinnu og samstarf milli stoðgreina ferðaþjónustunnar, ferðaþjónustufyrirtækja, sveitafélaga og annarra hagsmunaaðila í þessarri vinnu sem framundan er. Því með samstillu átaki og skýrri framtíðarsýn getur ferðaþjónustan á Vestfjörðum haldið áfram að vaxa og dafna öllum Vestfirðingum til heilla.

Nánari upplýsingar um Stefnumótunarvinnuna og vinnufundina er að fá hjá Ásgerði í síma 450 3053 og Jóni Páli í síma 450 4041.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Borgarísjakabrot útaf Krossnesi 15-09-2007.
  • Árnesstapar-06-08-2008.
  • Þórólfur Guðfinnsson.
Vefumsjón