Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 25. september 2012
Prenta
Stjórnun í ferðaþjónustu - Kynningarfundir.
Háskólinn á Bifröst býður nú í fyrsta sinn nám í stjórnun og rekstri í ferðaþjónustu. Fyrirhugað er að halda kynningarfundi fyrir Vestfirði í dag þriðjudaginn 25. september í Hótel Bjarkarlundi kl.12-13 og Patreksfirði í Skor kl. 20-21.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir ferðaþjónustuna á Ströndum, Reykhólasveit og sunnanverðum Vestfjörðum til að kynna sér þetta nám. Nánari upplýsingar fást einnig hér.