Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 7. júní 2012 Prenta

Strandafrakt byrjuð með áætlunarferðir.

Einn af flutningabílum Strandafraktar.
Einn af flutningabílum Strandafraktar.
 Í gær var fyrsta hefðbundna áætlun Strandafraktar til Norðurfjarðar á þessu sumri,en ferðir Strandafraktar hefjast að venju fyrsta miðvikudag í júní og áætlunarferðirnar standa út október. Bíllinn fer úr Reykjavík á þriðjudögum og þann dag til Hólmavíkur um kvöldið og til Norðurfjarðar á miðvikudögum. Í maí var Strandafrakt búin að koma ferðir að sækja grásleppuhrognatunnur. Eins hefur Strandafrakt verið í fiskflutningum frá miðjum maí eftir að strandveiðar byrjuðu,enn nokkrir bátar gera út á strandveðar frá Norðurfirði bæði heimabátar og aðkomubátar. Eins og undanfarin tvö ár mun póstur koma með bílnum á miðvikudögum. Flug til Gjögurs er nú aðeins einu sinni í viku og það er á mánudögum. Hreppsbúar fá því póst bæði flugleiðis og landleiðis í sumar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Ásbjörn Þorgilsson grefur fyrir grunninum.22-08-08.
  • Tvær góðar,Krístín og Edda.
  • Búið að klæða tvöfalda herbergin.04-04-2009.
  • Hilmar og Gulli píparar.08-11-08.
  • Munaðarnes-Drangaskörð í baksýn-2003.
Vefumsjón