Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 6. nóvember 2012 Prenta

Strandafrakt í síðustu ferð.

Flutningabíll frá Strandafrakt.
Flutningabíll frá Strandafrakt.

Miðvikudaginn 31. október átti að vera síðasta ferð hjá flutningafyrirtækinu Strandafrakt á Hólmavík,en það fyrirtæki sér um flutningana Reykjavík -Norðurfjörður,en þá gerði þetta stóra og langvarandi norðanhret, og komst bíllinn ekki fyrr en í dag þriðjudaginn 6. nóvember,ekki var opnað norður í gær mánudag en opnað var í dag. Strandafrakt heldur uppi vöruflutningum frá júní byrjun og út október. Ferðirnar hafa verið farnar á miðvikudögum norður til Norðurfjarðar frá Hólmavík,en úr Reykjavík á þriðjudögum til Hólmavíkur. Ferðir Strandfraktar hefjast á vorin fyrsta miðvikudag í byrjun júní og hætta síðasta miðvikudag í október. Strandafrakt hefur einnig séð um alla fiskflutninga í sumar á meðan á strandveiðum stóð og einnig í haust þegar bátar hafa róið og lagt upp á Norðurfirði. Þótt þetta sé síðasta áætlunarferðin kemur Strandafrakt að venju í desember að sækja ull til bænda og koma aukaferð ef einhver sérstakur flutningur er. Nú í nóvember mánuði koma allar vörur í útibú Kaupfélag Steingrímsfjarðar á Norðurfirði með flugi á Gjögur,og póstur að venju.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Október »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Úr myndasafni

  • Báturinn Agnes fer ekki lengra inn og sleppir flotanum.
  • Fyrsti flotinn verður skilin eftir út á rúmsjó meðan að verða sóttar fleyri ferðir í fjöruna.
  • Borgarísjaki vestan við Sælusker, 19-06-2018.
  • Stóra-Ávík-23-07-2008.
  • Norðurfjörður I -2002.
  • SV hlið eldhúsmegin,SV hlið lokið.18-12-2008.
Vefumsjón