Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 17. nóvember 2009 Prenta

Strandsvæði.Sóknarfæri fyrir vestfirsk samfélög.

Fyrsti fundurinn er í Malarkaffi fimmtudaginn 19 nóvember.
Fyrsti fundurinn er í Malarkaffi fimmtudaginn 19 nóvember.

Fyrsti fundur í fundarröð um nýtingaráætlun fyrir strandsvæði við Vestfirði verður haldinn á veitingarstaðnum Malarkaffi á Drangsnesi, fimmtudaginn 19. nóvember n.k. kl 20.00.  Val fundarstaðar er ekki tilviljun, hér er hrint af stað verkefni, hinu fyrsta sinnar tegundar á Íslandi þar sem sjónum er beint að nýtingu strandsvæðisins og því er viðeigandi að sá fundur sé haldinn í fjörurkambi við mynni Steingrímsfjarðar.

Fundir og svæðaafmörkun þeirra er annars sem hér segir;

Strandasýsla,  19. nóvember kl 20.00. veitingarstaðurinn Malarkaffi, Drangsnesi.

Reykhólahreppur, 20. nóvember kl 10.00. Íþróttahúsið Reykhólum, Reykhólum

Vestur Barðastrandasýsla , 20.  nóvember kl 17.00. Skor þróunarsetur, Patreksfirði

 Ísafjarðarsýsla,  25. nóvember kl 20.00.  Þróunarsetur Vestfjarða, Árnagötu, Ísafirði

 

 

Strandlengja Vestfjarða, að meðtöldum eyjum og hólmum, er um 1/3 hluti af strandlengju Íslands.  Aukinn áhugi er fyrir nýtingu strandsvæða við Ísland og veruleg tækifæri er þar að finna til framtíðar litið.  Stjórnsýsla strandsvæðis Íslands er með brotakenndum hætti, áhrif samfélaganna á þróun mála eru lítil og aukin hætta er á hagsmunaárekstrum eftir því sem fram í sækir. Vestfirsk sveitarfélög hafa því ákveðið, í samvinnu við Teiknistofuna Eik og Háskólasetur Vestfjarða, að hrinda af stað verkefni sem hefur það meginmarkmið að gera samþætta nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða og samræma stjórnun og nýtingu þessara svæða í samvinnu við íbúa og hagsmunaaðila.  Verkefnið verður hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, þar sem greina á nýtingu strandsvæðis innan heils landshluta.

 

Hjálagðar eru nánari upplýsingar um aðdraganda og innihald verkefnisins. Nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga (adalsteinn@fjordungssamband.) og Gunnar Páll Eydal Teiknistofunni Eik (gunnar@teiknistofan.is). 

Og einnig upplýsingar í Símum 450 3001. GSM 862 6092 Fax 450 3005

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Borgarísjaki Vestur af Sæluskeri. 27-08-2018.
  • Tekin grunnur 22-08-08.
  • Hilmar Hjartarson þenur nikkuna.
  • Úr sal.
Vefumsjón