Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 26. október 2009 Prenta

Styrkir frá Menningarráði Vestfjarða.

Á föstudaginn 30 október rennur umsóknarfrestur út.
Á föstudaginn 30 október rennur umsóknarfrestur út.
Fréttatilkynning.
Nú er tæp vika til stefnu til að sækja um styrki til Menningarráðs Vestfjarða við seinni úthlutun á árinu 2009 og eru þegar komnar nokkrar ágætar umsóknir í hús. Umsóknarfrestur er til 30. október og sækja þarf um styrki til afmarkaðra menningarverkefna á Vestfjörðum. Umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist. Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun fram að þessu og við seinni úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
d. Verkefni sem miða að því að ungt fólk komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi á Vestfjörðum.

Athygli er vakin á því að styrkir einskorðast ekki við þessar áherslur og umsóknir um annars konar menningarverkefni eiga einnig fullt erindi. Rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur er að finna á vef Menningarráðsins - www.vestfirskmenning.is. Í úthlutunarreglum er skilgreint hvernig verkefni Menningarráðið styður og einnig má skoða eldri úthlutanir til að fá hugmynd um það. Styrkir til verkefna hafa verið á bilinu 50 þúsund til 1,5 milljón. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891-7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Desember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Árnesstapar-06-08-2008.
  • Úr eldhúsi fólkið sem ber fram mat og þjónar til borðs.
  • Bátar í Litlu-Ávík.
  • Hilmar Hjartarson frá Steinstúni þenur harmonikuna.
  • Úr sal.Gestir
  • Sumt þarf að flytja í traktorsskóflum.06-09-08.
Vefumsjón