Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 14. mars 2009
Prenta
Synir tímans.
Vefnum áskotnaðist þessi vísa nú á dögunum,hún skýrir sig sjálf,og er birt hér öðrum til ánægju.
Tólf eru synir tímans
sem tifa fram hjá þér.
Janúar er á undan
með árið í faðmi sér.
Tólf eru synir tímans
sem tifa fram hjá þér.
Janúar er á undan
með árið í faðmi sér.
Febrúar og fannir
þá læðist geislinn lágt.
Í mars þó blási oft biturt
þá birtir smátt og smátt.
Í apríl sumar aftur
þá ómar söngur nýr.
Í maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.
Í júní sest ei sólin
þá brosir blómafjöld.
Í júní er bagginn bundinn
og borðuð töðugjöld.
Í ágúst slá menn engin
og börnin týna ber.
Í september fer söngfugl
og sumardýrðin þver.
Í október fer skólinn
að bjóða börnum heim.
Í nóvember er náttlangt
í norðurljósageim.
Þó desember sé dimmur
þá dýrðleg á hann jól.
Á honum endar árið
og aftur hækkar sól.
Höf. ókunnur.
Sótt úr kolli Guðfinns Jakobssonar
frá Reykjarfirði á Ströndum norður
haustið 1989.