Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 22. janúar 2015
Prenta
Tækjamót fyrirhugað í Trékyllisvík.
Tækjamót SL 2015 verður haldið á Ströndum föstudag 20. til sunnudags 22. mars. 2015: Mörg ár eru síðan tækjamót hefur verið haldið á Vestfjörðum og því gott tilefni til að láta reyna á tækin í þeirri vetrarparadís sem Vestfirðirnir eru. Tækjamótin eru með hefðbundnu sniði en heimamenn munu sjá um leiðsögu til dæmis á Drangajökul en endanlegt ferðaplan mun að sjálfsögðu taka mið af veðri og færð. Upplýsingar um valkosti í gistingu munu berast snemma í febrúar hið síðasta. Þetta kemur fram á vef Landsbjargar.