Talsverðar rafmagnstruflanir urðu í gær.
Töluverðar rafmagnstruflanir urðu á öllum vestfjörðum skömmu eftir hádegi í gær. Vesturlína leysti út í Geiradal og Mjólká og olli það straumleysi á öllum Vestfjörðum um stund. Varaaflsvélar í Bolungarvík komu fljótlega inn og varð straumleysi því stutt á norðanverðum Vestfjörðum. Varaaflsvélar voru settar í gang á sunnanverðum fjörðunum. Lengst var spennuleysi í Dýrafirði. Orsök þessarar útleysingar er bilun á Tálknafjarðarlínu. Tálknafjarðarlína, sem er í eigu Landsnets, liggur frá Mjólká til Tálknafjarðar og sér sunnanverðum Vestfjörðum fyrir rafmagni. Óvenjulegar veðuraðstæður á þessu svæði ollu einnig tjóni á Bíldudalslínu. Ísing hefur myndast og er í.þ.m. einn staur brotinn í Tálknafjarðarlínu, slár og vír í sundur. Viðgerð er að hefjast og verður vonandi hægt að ljúka þeim fyrir kvöldið. Á meðan eru varaaflsvélar Orkubús Vestfjarða keyrðar og ætti þetta ekki að valda forgangsnotendum frekari óþægindum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða.