Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 4. júní 2019
Prenta
Það snjóar enn.
Í gærkvöld og í morgun snjóar í fjöll og alveg niður á lálendi, en snjó tekur strax upp á láglendi eftir hryðjurnar (élin) , uppí í um hundrað metra hæð. Norðan eða norðnorðaustanátt er 9 til 12 m/s og hitinn var í nótt 1,5 til 4,0 stig frá því í gærkvöldi.
Talað er um að þessi kuldatíð hér á Ströndum verði fram yfir hvítsunnu sem er 9 til 10 júní, en hvítasunnan er óvenju seint í ár.
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar eru hálkublettir norður í Árneshrepp.