Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 27. apríl 2012 Prenta

Þóra Arnórs með mest fylgi.

Þóra Arnórsdóttir kynnir framboð sitt.
Þóra Arnórsdóttir kynnir framboð sitt.
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ á fylgi forsetaframbjóðendanna sem gerð var dagana 24. - 26. apríl fengi Þóra Arnórsdóttir mest fylgi, 49%. Ólafur Ragnar Grímsson mælist með 34,8% og Ari Trausti Guðmundsson 11,5%. Aðrir frambjóðendur mælast með minna fylgi. Könnunin var send á netpanel Félagsvísindastofnunar, sem byggir á tilviljunarúrtökum úr Þjóðskrá. Gögnin voru að auki vigtuð með tilliti til aldurs, kyns og búsetu svo þau endurspegli þjóðina, samkvæmt fréttatilkynningu frá Félagsvísindastofnun. Sami hópur var spurður um afstöðu sína til frambjóðenda þann 17. apríl síðastliðinn en þá hafði Ari Trausti Guðmundsson ekki gefið kost á sér. Hann virðist sækja fylgi sitt einkum til óákveðinna en 46% þeirra sem nú segjast ætla að kjósa hann ætluðu áður að skila auðu, voru óákveðnir eða vildu ekki svara. 0,8% sögðust ætla að kjósa Ástþór Magnússon, 0,3% ætla að kjósa Hannes Bjarnason, 3% hyggjast kjósa Herdísi Þorgeirsdóttur og 0,6% Jón Lárusson. Þriðjungur stuðningsmanna Ara Trausta ætluðu að kjósa Þóru Arnórsdóttur þegar spurt var 17. apríl og 11% ætluðu að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Svarendur voru spurðir að því hvað vegi þyngst við val þeirra. Velja mátti að hámarki þrjú atriði af 15. Almennt þótti svarendum þekking og reynsla frambjóðandans mikilvægust og því næst heiðarleiki frambjóðandans. Þetta kemur fram í frétt á vef Morgunblaðsins. Nánar á mbl.is

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Í Simonarpás er aðeins ein stór spíta.
  • Lokað þak inni.12-11-08.
  • Jón G Guðjónsson situr á jaka útá Hjallskerum. Mynd RAX.
  • Reykjaneshyrna 10-03-2008.
  • Saumaklúbbur á Melum I. 31-01-2014.
Vefumsjón