Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 19. febrúar 2017 Prenta

Til hamingju konur með konudaginn.

Í dag er það til siðs að karlar gefi konum blóm á konudaginn.
Í dag er það til siðs að karlar gefi konum blóm á konudaginn.

Af tilefni konudagsins í dag ætlar vefurinn Litlihjalli að fjalla um þann dag og kemur hér umfjöllun tekið af vísindavefnum, höfundur er Árni Björnsson hinn þekkti þjóðháttarfræðingur.:

Elstu bókfestu dæmi þess að orðið konudagur sé notað um fyrsta dag góumánaðar eru frá því um miðja 19. öld, en það gæti verið langtum eldra í talmáli. Góa er næstseinasti mánuður vetrarmisseris samkvæmt hinu forníslenska tímatali og nafnið sést í elstu handritum eða frá því um 1200. Óvíst er hvað orðið merkir upphaflega en orðsifjafræðingar hallast helst að því að það eigi eitthvað skylt við snjó.

Sú tilgáta fellur vel að stöðu hennar í ævintýralegri fornaldarsögu, þar sem faðir Góu er Þorri, afi hennar heitir Snær og langafinn Frosti en föðursystur Mjöll og Drífa. Þar er nafn hennar reyndar Gói. Eftir þeirri sögu strauk Gói brott með strák á Þorrablóti einu. Þorri lét halda blót til að leita um það frétta hvar hún væri niður komin. Það kölluðu þeir Góiblót. Seinna breyttist nafnmyndin úr Gói í Góa.

Sennilega hafa menn í heiðnum sið haldið einhverja smáveislu í upphafi hinna gömlu vetrarmánaða. Þetta hverfur úr opinberu lífi við kristnitökuna en virðist hafa haldist við sumstaðar í heimahúsum. Frá lokum 17. aldar er til kvæði eftir séra Bjarna Gissurarson í Þingmúla um gömlu Góu sem gengur um bæi og skoðar í búrið hjá húsfreyju. Í bréfi frá séra Jóni Halldórssyni í Hítardal til Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn árið 1728, segir að bændur eigi að innbjóða Góu á sama hátt og húsfreyjur bjóði Þorra: ganga út fyrir dyr kvöldið fyrir góukomu og bjóða henni inn sem góðum virðingargesti með fögrum tilmælum um að hún væri sér og sínum létt og ekki skaðsöm. Þetta virðast vera leifar af beiðni til fornra vetrar- eða veðurvætta.: Enn og aftur til hamingju konur með daginn ykkar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Úr myndasafni

  • Litla-Ávík.
  • Fjarskiptastöð Símans við Reykjaneshyrnu.
  • Vignir Maríasson frá Felli.
  • Krossnessundlaug-31-08-2002.
  • Björn og Helga starta upp fjöldasöng.
Vefumsjón