Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 11. febrúar 2015
Prenta
Tókst að fljúga á Gjögur í dag.
Flugfélaginu Ernum tókst að fljúga á Gjögur í dag. Vörur og nauðsynjar komu í útibú Kaupfélags Steingrímsfjarðar. Ekki hefur verið flogið á Gjögur síðan mánudaginn 2.febrúar,og var því ýmislegt farið að vanta í verslunina. Einnig kom níu daga póstur,en póstur kemur tvisvar í viku þegar flogið er. Næsta áætlunarflug er á morgun fimmtudag,og lítur sæmilega út með að flug takist þá.