Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 24. júlí 2013
Prenta
Tveir nýir bílar OV.
Tveir nýir bílar hafa bæst í bílaflota Orkubúsins. Bílarnir sem keyptir voru frá Þýskalandi og breytt hjá Arctik Trucks eru af gerðinni Toyota LC 70. Hjá Arctik Trucks var þeim breytt fyrir 35" hjólbarða og bætt í þá aukabúnaði þannig að þeir henti við erfiðar aðstæður. Bílarnir verða staðsettir á Hólmavík og Ísafirði. Þetta kemur fram á vef Orkubús Vestfjarða.