Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 9. desember 2012
Prenta
Um land allt á Drangsnesi.
Þátturinn Um land allt sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld sunnudagskvöld að loknum fréttum kl. 18.55. er frá Drangsnesi. Þar heimsækir Kristján Már Unnarsson Drangsnesinga. Í fyrri þáttum af Um land allt, hefur Kristján heimsótt Árneshrepp í tveimur þáttum og Skjaldfannadal við Djúp í tveimur þáttum svo eitthvað sé nefnt. Þættina má nálgast á visir.is. undir sjónvarp. Þessir þættir þykja mjög vinsælir og þegar þættirnir frá Árneshreppi voru sýndir var metáhorf á Stöð 2 samkvæmt mælingum,aðeins fréttir stöðvar 2 voru með meira áhorf.