Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 24. mars 2014 Prenta

Um vegaframkvæmdir á Ströndum.

Veiðileysa og Reykjarfjörður.
Veiðileysa og Reykjarfjörður.
Svar innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Elsu Láru Arnardóttur vegna vegaframkvæmda á Ströndum:
1. Hver er staða mála varðandi vegaframkvæmdir á Bjarnarfjarðarhálsi, Veiðileysuhálsi og veginum norðan Reykjarfjarðar?
  Í tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2013–2016 sem lögð var fram á Alþingi vorið 2013, var gert ráð fyrir fjármagni til endurbyggingar vegar yfir Bjarnarfjarðarháls, 200 millj. kr. 2015 og 300 millj. kr. árið 2016. Tillagan var ekki rædd eða samþykkt á þinginu. 
Tillaga ráðherra að þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2014–2016 hefur verið samþykkt í ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi. Þar er áfram gerð tillaga um framkvæmdir við Strandaveg. Hönnun nýs vegar er tilbúin að mestu og er hún í samræmi við aðalskipulag Kaldrananeshrepps 2010–2030. Nýr vegur yrði 7,5 km langur og geta framkvæmdir hafist sumarið 2015. Reiknað er með sömu fjárveitingu og áður árið 2015 eða 200 millj. kr., en hún er hækkuð árið 2016 úr 300 millj. kr. í 420 millj. kr. Í þingsályktun um 12 ára samgönguáætlun fyrir árin 2011–2022 er gert ráð fyrir fjármagni til vegagerðar um Veiðileysuháls í beinu framhaldi af framkvæmdum yfir Bjarnarfjarðarháls. Vegagerðin hefur skoðað nokkra valkosti fyrir nýja veglínu yfir hálsinn og að auki kannað möguleika á að fara fyrir Kamb í stað þess að fara yfir Veiðileysuhálsinn. Í nýsamþykktu aðalskipulagi Árneshrepps 2005–2025 ákvað sveitarstjórn að setja inn líklegustu veglínuna yfir Veiðileysuháls en þó er gert ráð fyrir leið um Kamb sem möguleika til framtíðar. 
Undanfarin ár hefur Vegagerðin unnið að gerð frumdraga fyrir mögulegar lausnir á vegagerð frá Kaldbakshorni og norður fyrir Gjögur. Nokkrir kaflar eru dýrir úrlausnar, einkum kaflarnir um Kaldbakshorn, milli Veiðileysu og Djúpavíkur og um Kjörvogshlíð. Frumdragaskýrsla liggur fyrir en með fyrirvörum um tvo staði, Kaldbakshorn og Veiðileysukleif. Hún verður endurskoðuð þegar forsendna til þess hefur verið aflað, en fyrst og fremst er um að ræða dýptarmælingar í sjó. 
2. Hefur ráðherra haft samráð við íbúa og sveitarstjórnarmenn í Árneshreppi um endurbætur á veginum norður í Árneshrepp? Ef ekki, hvenær stendur það til? 
Vegagerðin hefur haft töluvert samráð við sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps um vegamál á svæðinu. Hefur það samráð bæði verið með óformlegum og formlegum hætti. 
Má þar t.d. nefna að þrír fulltrúar Vegagerðarinnar mættu á fund sveitarstjórnar Árneshrepps í vetrarlok 2013 til viðræðna um lausnir í vegamálum Strandavegar. Benda má á að bæði þessi sveitarfélög hafa á undanförnum árum lokið gerð aðalskipulags. Þar skipa vegamálin stóran sess og skipulagið var unnið í nánu samráði við Vegagerðina.
Elsa Lára Arnardóttir er þingmaður framsóknarflokkssins í Norðvesturkjördæmi.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Bærin Íngólfsfjörður-24-07-2004.
  • Helga veislustjóri og barnabarn Maddýar tekur lagið við undirleik Hilmars.
  • Úr svefnherbergisálmu.05-02-09.
  • Rafmagnstafla komin upp.12-12-2008.
Vefumsjón