Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 29. desember 2023
Prenta
Umhleypingasamt sem af er desember.
Eftir góðviðri og hægviðri fram til 12 desember gerði umhleypinga og var umhleypingasamt fram til nítjánda. Eftir það voru norðlægar vindáttir, N,NV, NA, með hvassviðri eða stormi með snjókomu eða éljum. Það stytti upp á jóladag. Síðan byrjaði éljagangur aftur þann 27 með norðanátt. Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands verða él eða snjókoma víða um áramót, enn ekkert hvassviðri.