Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 3. mars 2017 Prenta

Upphafsdagur grásleppuvertíðar er 20. mars.

Grásleppa í kari.
Grásleppa í kari.

Birt hefur verið reglugerð um hrognkelsaveiðar 2017.  Helsta breytingin frá í fyrra er að upphafsdagar veiðanna færast aftur til fyrra horfs. Verða þeir sömu og á vertíðinni 2015.

Heimilt verður að hefja veiðar 20. mars á eftirtöldum svæðum:

D - sem nær frá Horni að Skagatá.

E - nær frá Skagatá að Fonti á Langanesi

F - þekur hafsvæðið frá Fonti suður að Hvítingum

G - Suðurland, frá Hvítingum að Garðskagavita

Veiðitímabilið nær frá 20. mars til og með 2. Júní. Þann 1. apríl verður heimilt að hefja veiðar á svæðum:

 

A - Faxaflóa, frá Garðskagavita að Dritvíkurtanga

B - Breiðafjörður utan línu sem dregin er úr Krossnesvita  í Lambanes.  Svæðið markast að Dritvíkurtanga í suðri og Bjargtöngum í norðri. 

C - Vestfirðir, Bjargtangar að Horni. Veiðitímabilið nær frá 1. apríl til og með 14. júní. 20 maí verður heimilt að hefja grásleppuveiðar í innanverðum Breiðafirði.  Veiðitímabilinu lýkur þar 2. ágúst.

Eins og undangengin ár verður endanlegur fjöldi daga ekki ákveðinn fyrr en niðurstöður liggja fyrir úr vorralli Hafrannsóknastofnunar þann 1. apríl. Þar til gildir ákvörðun um 20 daga sem  leyfilegt er að stunda grásleppuveiðar. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeiganda.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Úr myndasafni

  • Borgarísjakabrot útaf Lambanesi 16-09-2003.
  • Borgarísjaki með tvo tinda er NNV við Reykjaneshyrnu ca 18 KM frá landi.26-08-2018.
  • Snjóblástur á Gjögurflugvelli 10-03-2008.
  • Sigursteinn hifir plötur á þak,á þaki eru-Gulli Hrafn og Íngólfur.
  • Frá saumaklúbb á Krossnesi 18 febrúar 2012.
Vefumsjón