Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 5. júlí 2021
Prenta
Urðartindur bætir við herbergjum.
Á næstunni opnar ferðaþjónustan Urðartindur í Norðurfirði fjögur ný herbergi. Áður voru þar gömul fjárhús, en framkvæmdir við þessar breytingar hófust vorið 2019.
Með þessari viðbót getur því Urðartindur boðið upp á 8 herbergi og 2 smáhýsi fyrir ferðafólk hvaðanæva að úr heiminum.