Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 26. apríl 2009
Prenta
Útstrikanir í NV-kjördæmi breyta engu.
MBL.ÍS.
Rúmlega 400 kjósendur í Norðvesturkjördæmi strikuðu yfir nöfn þriggja frambjóðenda.
Flestir strikuðu yfir nafn Ólínu Þorvarðardóttur, sem skipaði annað sætið á lista Samfylkingarinnar. Þá voru á annað hundrað útstrikanir yfir nafn Jóns Bjarnasonar, oddvita á lista VG og tæplega 100 strikuðu yfir nafn Ásbjörns Óttarssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins.
Útstrikanirnar breyta engu um röð þingmanna. Ekki er gert ráð fyrir að búið verð að telja útstrikanir í öðrum kjördæmum fyrr en á morgun eða þriðjudag.
Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins www.mbl.is