Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 29. ágúst 2014 Prenta

Vandmál hefur verið með útibústjóra KSH.

Kaupfélagið Norðurfirði.
Kaupfélagið Norðurfirði.
1 af 5

Mikið vandamál hefur verið frá því í firrahaust með útibústjóra við útbú Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Norðurfirði. Ragnheiður Edda Hafsteinsdóttir hætti 31.október 2013,en hún hafði gengt starfinu frá 1.maí 2009. Þá tók Margrét Jónsdóttir við starfinu enn á ný,en var búin að vera verslunastjóri þar áður í fleiri ár áður,en var núna fram í miðjan apríl 2014. Eftir það sendi Kaupfélag Steingrímsfjarðar mann norður sem var að flytja til Hólmavíkur frá Kópaskeri,þaulvanan verslunarmann,og ætlaði vinna hjá Hólmadrangi á Hólmavík. En Ágúst Þormar Jónsson var útibústjóri á Norðurfirði frá um miðjan apríl fram til 10.júní þegar hann hóf störf hjá Hólmadrangi.

Þann 10.júní kom  Birna Melsted úr Reykjavík og hefur hún verið verslunarstjóri á Norðurfirði í sumar,en nú er hún á förum aftur um næstu mánaðamót ágúst- september. Sonur hennar Viktor Hjörvarsson hefur verið í búðinni með móður sinni þar til hann þurfti að fara í framhaldsskóla fyrir sunnan um miðjan mánuðinn. Þannig að Birna hefur því séð um verslunina í tæpa þrjá mánuði. Fólk hér í Árneshreppi á eftir að sagna hennar í versluninni.

Þannig að það eru búnir að vera þrír verslunarstjórar við verslunina á Norðurfirði frá í fyrra haust og fjórði verslunarstjórinn byrjar þann 1.september. Þetta sínir það að slæmt er að fá fólk sem vill ílengjast hér í þessari fögru sveit.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Maddý-Sirrý og Selma.
  • Sundlaugin Krossnesi-04-10-2006.
  • Búið að tvöfalda og leggja rafmagnsrör og dósir í veggi.04-04-2009.
  • Guðbrandur við smíðar.04-04-2009.
  • 24-11-08.
Vefumsjón