Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 30. ágúst 2010
Prenta
Vappaðu með mér Vala.
Í næsta mánuði gefur Strandagaldur á Hólmavík út geisladiskinn Vappaðu með mér Vala með rímnakonunni Ásu Ketisldóttir frá Laugalandi við Djúp. Efnið sem Ása fer með á þessum diski lærði hún nær allt á bernskuheimili sínu í Aðaldal. Vísurnar sem Ása flytur á diskinum bera merki um fjölbreytilegt yrkisefni. Á honum er fjallað um náttúruna, ástina, heimþrá og söknuð en einnig um hesta, ferðalög, drykkjuskap og veðrið. Nákvæmur útgáfudagur hefur ekki verið ákveðinn ennþá en hægt er að skoða sérstaka heimasíðu útgáfunnar og skoða veglegan bækling sem fylgir henni með því að smella hér.
Vappaðu með mér Vala verður meðal annars hægt að nálgast í sölubúð og vef Strandagaldurs.