Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 2. ágúst 2023
Prenta
Veðrið í Júlí 2023.
Yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík.
Mæligögn:
Úrkoman mældist 74,4 mm. (í júlí 2022: 42,6 mm.)
Úrkomu sem varð vart en mældist ekki var í 0 dag.
Þurrir dagar voru 10.
Mestur hiti mældist þann 9: +17,3 stig.
Minnstur hiti mældist þann 19: +2,5 stig.
Meðalhiti mánaðarins var +6,6 stig. (í júlí 2022: +8,7 stig.)
Meðalhiti við jörð var +4,44 stig. ( í júlí 2022: +6,0 stig.)
Yfirlit dagar eða vikur:
Norðan eða Norðlægar vindáttir voru mest í mánuðinum, og kalt í veðri í þokulofti og súld. Hægviðrasamt var og gott veður að öðru leyti.