Veður versnandi fer.
Nú virðist sem góða kaflanum sem verið hefur sé að ljúka í bili að minnsta kosti ef veðurspá Veðurstofu Íslands gengur eftir:
Hæg suðlæg átt og skýjað en þurrt að kalla. Austan 3-8 og dálítil rigning í kvöld. Hæg suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir eða rigning með köflum á morgun. Hiti 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
Vestlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða él, en léttskýjað SA-lands. Gengur í 13-20 m/s með snjókomu, fyrst NV-lands upp úr hádegi, en þurrt að kalla syðra. Kólnar ört í veðri.
Á mánudag og þriðjudag:
Ákveðin norðanátt með éljum eða snjókomu N- og A-lands og frost 0 til 8 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Dregur smám saman úr vindi og ofankomu, en talsvert frost.
Hér er líka langtímaspá Norsku Veðurstofunnar fyrir svæðið hér,en sú spá gerir ráð fyrir mikilli úrkomu í þessu NA veðri frá sunnudegi og eins langt og séð verður.Langtímaspá YR.NO má sjá hér.