Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 4. febrúar 2019 Prenta

Verslunarfélag Árneshrepps. ehf.

Stofnfélagar.
Stofnfélagar.
1 af 3

Á föstudaginn 1 febrúar var haldinn stofnfundur félags um verslun í Árneshreppi.

Verslun lagðist af í hreppnum í haust og hafa íbúar hreppsins þurft að panta vörur og fá þær sendar með flugi, þar sem ekki er mokað að jafnaði í Árneshrepp frá áramótum til 20. mars. Það er því afar áríðandi að koma á verslun fyrir þá íbúa sem hafa vetursetu í Árneshreppi.

Fjöldi fólks lýsti yfir stuðningi við verkefnið og áhuga á því að eignast hlutafé í versluninni. Um 4.000.000 kr söfnuðust í hlutafé og eru hluthafar tæplega 70. Sett var 100.000 kr hámark á hlutafjárkaup til að tryggja dreifða eignaraðild.

Stofnfundurinn var haldinn í húsnæði verslunarinnar í Norðurfirði. Það var góð mæting og ríkti bjartsýni á fundinum. Félagið fékk nafnið Verzlunarfjelag Árneshrepps. ehf, og er stefnt að því að opna með takmarkaðan opnunartíma strax á vormánuðum og síðan með fullum opnunartíma í sumarbyrjun.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Febrúar »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28

Úr myndasafni

  • Flugstöðin Gjögurflugvelli.
  • Jóhann Björn,Jón Guðbjörn,Ragna og Bía.
  • Frændurnir Gunnar Njálsson og Valgeir Eyjólfsson.
  • Mundi og Björn fara að setja lista í loft:19-02-2009.
Vefumsjón