Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 25. september 2013
Prenta
Verslunarstjóri óskast.
Kaupfélag Steingrímsfjarðar auglýsir laust til umsóknar starf verslunarstjóra í verslun félagsins á Norðurfirði. Verslunarstjóri ber ábyrgð á og stýrir daglegum rekstri verslunarinnar.
Helstu verkefni:
- Innkaup
- Vörumóttaka
- Sala og póstafgreiðsla
- Dagleg stjórnun
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
Hæfni og þekking:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verslunarstörfum æskileg.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Frumkvæði, nákvæmni og góð skipulagshæfni
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
Frekari upplýsingar gefur kaupfélagsstjóri í síma 455 3100 eða á netfanginu jon@ksholm.is. Umsóknum, ásamt ferilskrá, skal skila á skrifstofu Kaupfélags Steingrímsfjarðar, Höfðatúni 4, 510 Hólmavík.