Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 13. desember 2012
Prenta
Vestfirsk Bókamessa á Cafe Catalina í kvöld.
Bókamessa Vestfirska forlagsins á Þingeyri verður á Cafe Catalina í Kópavogi fimmtudaginn 13. des. kl. 20. Þar verða kynntar og lesið úr þessum bókum:
Guðrún Ása Grímsdóttir kynnir bókina Vatnsfjörður í Ísafirði, Reynir Ingibjartsson með ævisögu Kristínar Dahlstedt veitingakonu í Fjallkonunni sem fædd var í Dýrafirði, Lárus Jóhannsson með Andvaka, lífshlaup og ljóð Tómasar Guðmundssonar Geirdælings hins víðförla, Frá Bjargtöngum að Djúpi kynna; Guðvarður Kjartansson, Emil R. Hjartarson, og Kristinn Snæland, Lýður Árnason kynnir bók sína Svartir túlípanar og Ólafur J. Engilbertsson með Æfiágrip Kolbeins í Dal.