Viðvörun vegna norðanhvassviðris eða -storms um jólahátíðina.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill vekja athygli á slæmri veðurspá frá Veðurstofu Íslands um jólahátíðina. Spáð er norðan hvassviðri eða stormi (vindhraða 15-23 m/s) víða um land á aðfangadag, jóladag og fram á annan í jólum. Veðrinu fylgir talsverð snjókoma og skafrenningur N- og A-lands og því hætt við að færð spillist á þeim slóðum. Á morgun, Þorláksmessu, gengur í norðaustanstorm með slyddu, en síðar snjókomu á Vestfjörðum og Ströndum. Lögreglan á Vestfjörðum bendir á að gangi veðurspá eftir geti færð spillst mjög hratt. Fólk er beðið um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu á meðan veðrið gengur yfir. Þeim sem þurfa að vera á ferðinni er bent á að fylgjast vel með veðurspá, veðurathugunum og færð á vegum.
Þessu veðri, ef það gengur eftir, mun fylgja ófærð og hætta á snjóflóðum þar sem þau geta orðið. Sjómenn eru beðnir að gæta að bátum í höfnum Norðvestanlands og á Ströndum, Nánari upplýsingar er að finna á www.vedur.is og www.vegagerdin.is