Selma Margrét Sverrisdóttir | föstudagurinn 28. febrúar 2014
Prenta
Vigdís Grímsdóttir skrifar í Kvennablaðið
Rithöfundurinn Vigdís Grímsdóttir hefur nú hafið pistlaskrif hjá Kvennablaðinu en hún skrifar frá Norðurfirði á Ströndum. Í skrifum sínum talar hún um lífið og tilveruna á þessum fallega stað og sendir Vegagerðinni tóninn. Einnig dásamar hún Borgarbókasafnið og segir frá því sem á daga hennar drífur. Pistlarnir eru líkastir hugsanaflutningi úr höfði rithöfundarins og skemmtilegir aflestrar.