Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 20. desember 2010 Prenta

Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 13.til 20. des. 2010.

Lögregla vill beina því til ökumanna að aka með gát,því víða er mjög mikil hálka.
Lögregla vill beina því til ökumanna að aka með gát,því víða er mjög mikil hálka.

Vikunni sem var að líða voru tilkynnt um fjögur umferðaróhöpp til lögreglunnar á Vestfjörðum.

Mánudaginn 13. des, varð bílvelta á Djúpvegi, Eyrarhlíð, þar valt bifreið,eftir að hafa lent utan í vegriðinu og hafnaði á ljósastaur.Gerðist þetta í framhaldi af framúrakstri sem rekja má til hálku.Ökumaður kenndi sér eymsla í baki og fór í skoðun á sjúkrahúsið á Ísafirði .Bifreiðin óökuhæf, flutt af vettvangi með kranabíl.

Tvö umferðaróhöpp urðu í Vestfjarðargöngunum í vikunni.Fimmtudaginn 16. des,skullu tvær bifreiðar saman í Súgundarfjarðarleggnum.Ekki var slys á fólki.Föstudaginn 17. des ók bifreið utan í vegg ganganna,með þeim afleiðingum að bifreiðin varð óökuhæf og varð flytja hana af vettvangi með kranabíl.Ökumaður fór á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar.  Sunnudaginn 19. des hafnaði bifreið út fyrir veg á Hnífsdalsvegi,í framhaldi af framúrakstri.Þrjú ungmenni voru í bifreiðinni, eftir óhappið voru þau flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar.Bifreiðin óökuhæf.Hálku er kennt um þetta óhapp.Lögregla vill brýna fyrir ökumönnum,sérstaklega ungun ökumönnum að aka varlega,núna þessa dagana eru akstursskilyrði mjög slæm, mjög víða hálka á vegum og erfitt getur verið að meta akstursskilyrði,sem geta breyst með stuttum fyrirvaka .

Einn Ökumaður var kærður fyrir meinta ölvun við akstur á Ísafirði aðfaranótt laugardagsins.Ökumaður þessi var ekki ánægður með afskipti lögreglu og eftir að hann fékk þá þjónustu hjá lögreglu sem honum bar vegna gruns um ölvunaraksturinn og hann búinn ausa úr skálum reiði sinnar yfir lögreglumenn,yfirgaf hann lögreglustöðina.Hann sá sig hins vegar knúinn til að taka ruslagám,á hjólum við Grunnskólann á Ísafirði,rúlla honum út á gatnamót Austurvegar/Hafnarstrætis.Þar sturtaði hann úr gámnum,sem mest var pappírsdrasl,jós því upp í vindinn, sem var allnokkur á þessum tíma,eingöngu til að ruslið dreifðist sem víðast.Umræddur aðili má því einnig búast við kæru vegna þess.Kalla varð út bæjarstarfsmenn til að þrífa miðbæinn eftir atvikið.

Miðvikudaginn 15. des var tilkynnt um þjófnað á bifreið á Ísafirði.Við rannsókn kom í ljós að nokkur ungmenni höfðu tekið bifreiðina traustataki og ekið bifreiðinni út fyrir bæinn og skemmt hana talsvert.Málið telst upplýst.

Einn ökumaður var tekinn fyrir of hraðan akstur á Djúpvegi, Arnkötludal, mældur á 105 km/klst.   Enn og aftur að brýna fyrir ökumönnum að akstursskilyrði eru ekki góð þessa dagana.

Nokkrar aðstoðarbeiðnir bárust lögreglu vegna veðurs, aðallega vegna foks.  Ekki var um  mikið tjón að ræða  í  þessum tilfellum.
Segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Úr svefnherbergisálmu.05-02-09.
  • Agnes komin uppundir Hjallskerin í Ávíkinni.
  • Klædd NV hlið að hlita,03-12-2008.
  • Borgarísjakinn 27-09-2017.
Vefumsjón