Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 15 feb til 22 feb 2010.
Í vikunni sem leið urðu fjögur umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum.Þriðjudaginn 16 feb fór bifreið út af Djúpvegi í Ísafirði,bifreiðin óökuhæf,ekki slys á fólki.Miðvikudaginn 17 feb. var tilkynnt um tvö óhöpp,fyrra óhappið var á Ísafirði,þar varð árekstur við gatnamót Silfurgötu og Tangagötu,talsvert tjón á ökutækjum,en ekki slys á fólki.Þá var tilkynnt þann sama dag um útafakstur á Holtavörðuheiði,þar hafnaði bifreið út fyrir veg,eftir framúrakstur,rekja má óhappið til akstursaðstæðna,hálka og snjór. Ekki miklar skemmdir á ökutæki,eða slys á fólki.
S.l. föstudag 19 feb. tók 13 ára ungmenni bifreið foreldra sinna ófrjálsri hendi og ók henni frá Hnífsdal til Ísafjarðar.Á Fjarðarstræti missti hann stjórna á bifreiðinni og ók utan í þrjár bifreiðar og á ljósastaur,sem skemmdi eina bifreið. Talsverðar skemmdir á öllum bifreiðunum.
17 feb varð vinnuslys við löndum á höfninni í Tálknafirði,þar klemmdist hönd á manni milli kara.Hinn slasaði var fluttum með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina á Patreksfirði þar sem gert var að meiðslum hans.
Umferðin í vikunni gekk að öðru leiti nokkuð vel í vikunni sem var að líða,þó voru höfð afskipti af nokkrum ökumönnum vegna búnaðar bifreiða,ljósabúnaði nokkuð áfátt,nokkrir ökumenn áminntir.