Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 24. janúar 2012 Prenta

Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 16. til 23.jan.2012.

Ekið var á hross á veginum við Skeljavík á Ströndum í vikunni.
Ekið var á hross á veginum við Skeljavík á Ströndum í vikunni.
Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku. Á mánudagskvöldið kom tilkynning til lögreglu um að dráttarbíll frá Skeljungi með eftirvagni fullum að bensíni,hafi farið á útaf í Hestfirði í Ísafjarðardjúpi. Strax voru gerðar viðeigandi ráðstafanir þar sem mikil eldhætta var talin vera á staðnum og  slökkvilið Ísafjarðarbæjar fór á vettvang. Veginum um Ísafjarðdjúp var strax lokað.  Það var síðan undir morgun að slökkviliðinu tókst að tryggja vettvang,aftengja rafgeyma dráttarbílsins til minka hugsanlega eldhættu,og í framhaldi af því hafist handa um að dæla bensíninu úr vagninum.  Gekk það nokkuð greiðlega og um kl.10:00 á þriðjudagsmorgun var því að mestu lokið og í framhaldi var vegurinn opnaður aftur. Talsvert mikið magn af bensíni fór niður og var dælubíll notaður til að ná sem mestu upp,en talsvert magn var í vatnsrásinni þar sem bíllinn valt. Nokkuð greiðlega gekk að ná dráttarbílnum og vagninum upp og í framhaldi voru tækin flutt til Ísafjarðar.

Föstudaginn 20. jan., var ekið á hross á veginum við Skeljavík á Ströndum, hrossið mun ekki hafa slasast. Þann sama dag varð bílvelta á Djúpvegi,Steingrímsfjarðarheiði,þar hafnaði bíll út fyrir veg og valt. Ekki slys á fólki,bifreiðin fjarlægð af vettvangi með krana.

Færð á vegum í umdæminu var frekar slæm,snjór og mikil hálka og áttu ökumenn víða í vandræðum á ferðum sínum. Þá hvetur lögregla ökumenn/vegfarendur til að kynna sér ástand vega og færð áður  en lagt er í langferð og minnir á síma vegagerðarinnar 1777/1779,þar sem hægt er að fá upplýsingar um færð og veður.

Skemmtanahald í umdæminu gekk nokkuð vel og án teljandi afskipta lögreglu, en þorrablót voru víða haldin á laugardagskvöldinu.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Íshrafl í Trékyllisvík 13-03-2005.
  • Flugstöðin Gjögurflugvelli.
  • Frá saumaklúbb á Krossnesi 18 febrúar 2012.
  • Inni lokað loftrúm.12-11-08.
  • Jakar útaf Litlu-Ávík togari á leið vestur.
Vefumsjón