Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 26. apríl 2011 Prenta

Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 18. til 25. apríl 2011.

28 ökumenn voru stöðvaðir í nágrenni við Hólmavík.
28 ökumenn voru stöðvaðir í nágrenni við Hólmavík.
Í liðinni viku og um páskahelgina var talsverður erill hjá lögreglunni á Vestfjörðum,mest á norðursvæði Vestfjarða,Ísafirði og þar um slóðir.Á öðrum stöðum á Vestfjörðum var frekar rólegt.  Talið er að íbúafjöldi í Ísafjarðarbæ hafi tvöfaldast,þangað hafi komið um þrjú þúsund gestir vegna rokkhátíðarinnar „Aldrei fór ég suður" og skíðavikunnar sem haldin var  um páskahelgina.  Skemmtanahaldið gekk nokkuð vel fyrir sig,lögregla þurfti að hafa afskipti af nokkrum aðilum og má segja að fyrripartur helgarinnar hafi gengið vel fyrir sig en þegar fór að líða á komu upp nokkur tilvik. m.a. laugardaginn 23. apríl var kveikt í sinu á Seljalandsdal á Ísafirði,greiðlega gekk að slökkva þar.

Um miðjan dag á  páskadag, 24. apríl var tilkynnt um tvö innbrot í Bolungarvík, þar var brotist inn í tvær verslanir, ýmsum söluvarningi stolið á báðum stöðunum, á sama tíma var tilkynnt um rúðubrot í sendiferðabíl sem tilheyrði annarri versluninni sem brotist var inn í.

Annan dag páska 25. apríl var eldur borinn að gamalli jeppabifreið númerslausri, þar sem bifreiðin stóð í Bolungarvík, bifreiðin gerónýt eftir.Þá fyrr um nóttina var kveikt í sinu í Bolungarvík og gekk greiðlega að slökkva þann eld.

Í gær 25. apríl voru fjórar manneskjur handteknar vegna grunsemda lögreglu um aðild að þessum innbrotum og skemmdarverkum sem hér að ofan er greint frá.  Allir þessir aðilar hafa viðurkennt aðild sína  að þessum málum og að yfirheyrslum loknum var þeim sleppt í gærkveldi.  Lögregla fann hluta þýfisins, sem verður skilað til eigenda.Þessir aðilar sem um ræðir hafa áður komið við sögu lögreglu vegna ýmissa brota.

Aðfaranótt 25. apríl var brotin hurð í Pólnum á Ísafirði,í framhaldi voru þrír aðilar handteknir vegna málsins og gistu þeir  í fangageymslu þar til af þeim rann og í framhaldi teknar af þeim skýrslur vegna málsins.Nokkuð var um stimpingar í framhaldi af skemmtunum  og þurfti lögregla að hafa afskipti af nokkrum aðilum.Þá tók lögregla áfengi af nokkrum ólögráða ungmennum.

Varðandi umferðina þá gekk hún nokkuð vel þó voru tilkynnt til lögreglu um tvö umferðaróhöpp í vikunni, annað á þjóðvegi nr. 61, veginum um Þröskulda í Gautsdal, þar valt jeppabifreið, ökumaður var einn í bílnum, hann var fluttur á heilsugæslustöðina í Búðardal til skoðunar.Bifreiðin óökuhæf, flutt af vettvangi með krana.

Þá varð umferðaróhapp á Eyrarhlíð í Ísafjarðarbæ, þar hafnaði bifreið á ljósastaur.Ökumaður og tveir farþegar hans voru fluttir á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar.Bifreiðin óökuhæf, flutt af vettvangi með krana.

Bensínfóturinn var ansi þungur hjá þó nokkuð mörgum ökumönnum, sem leið átti til og frá Vestfjörðum í vikunni, en 46 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur.28 ökumenn voru stöðvaðir í nágrenni við Hólmavík.12 voru stöðvaðir í Ísafjarðardjúpi og 6 innan bæjar á Ísafirði.  Sá sem hraðast ók var mældur á 131 km/klst.,þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Slegið upp fyrir grunni.04-09-08.
  • Frændurnir Gunnar Njálsson og Valgeir Eyjólfsson.
  • Margrét Jónsdóttir og Gunnsteinn Gíslason.
  • Borgarísjakabrot útaf Krossnesi 15-09-2007.
Vefumsjón