Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 8. nóvember 2010
Prenta
Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 1.til 8. nóvember 2010.
S.l. vika var tíðindalítil hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Skemmtanahald um liðna helgi fór vel fram og án teljandi afskipta lögreglu.Talsverð umferð var í umdæminu um helgina og bar þar mest á rjúpnaveiðimönnum.
Þrjú minniháttar umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu og tveir ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í nágrenni Ísafjarðar.