Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 23.febrúar til 2. mars 2009.
Fjögur umferðaróhöpp urðu á Vestfjörum í liðinni viku. Þriðjudaginn 24 . varð umferðaóhapp á þjóðvegi nr. 1 Holtavörðuheiði, þar fór dráttarbíll á hliðina og valt vagninn inn á veg og teppti aðra akreinina. Akstursskilyrði frekar slæm og skyggni lélegt. Ökumaður kenndi sér eymsla og fór sjálfur á Heilsugæslustöðina í Borgarnesi til skoðunar. Björgunarsveitarmenn frá Hvammstanga voru fengnir til aðstoðar við að losa farm bílsins sem var fiskur og aðstoða við að koma bílnum upp á veginn. Laugardaginn 1 . mars var eitt minniháttar umferðaróhapp á Ísafirði, litlar skemmdir og ekki slys á fólki. Á sama sólahring varð annað umferðaróhapp, á Djúpvegi í Mjóafirði, þar hafnaði bifreið út fyrir veg og var óökuhæf á eftir, ökumaður og tveir farþegar kenndu sér eymsla og fóru sjálfir til skoðunar. Bifreiðin fjarlægð af vettvangi með kranabíl. Aðfaranótt 2 . mars varð síðan bílvelta á Djúpvegi við Borgarháls á Ströndum, þar lenti flutningabíll með eftirvagn útaf. Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Hvammstanga, ekki vitað um meiðsli. Reynt verður að ná bílnum upp í dag eða morgun.
Það má brýna fyrir ökumönnum sem eru á ferðinni á þessum árstíma að fylgjast með veðri og færð, sumir fjallvegir eru lokaðir og þá eru þeir yfirleitt merktir sem slíkir, en talsvert er um að menn fari samt á þessa fjallvegi og hafa þá björgunarsveitir þurft að aðstoða þá til byggða. Sunnudaginn 1. mars fór Björgunarsveit frá Hólmavík ökumanni til aðstoðar sem var fastur í bíl sínum á Eyrarfjalli í Ísafjarðardjúpi, ökumaður lagði á fjallið, þrátt fyrir að lokunarmerkingar væru á veginum.
Tveir voru teknir fyrir ölvun við akstur í vikunni í umdæminu þá voru fjórir teknir fyrir of hraðann akstur.
Enn og aftur vill lögregla benda vegfarendum á það að misnota ekki slökkvitæki í Vestfjarðargöngunum, því enn og aftur var tæmt úr einu tæki í Súgundarfjarðarleggnum. Ekki þarf að fjölyrða um það, ef í neyð þarf að nota þessi tæki og einhverjir eru búnir að tæma þau að leikaraskap. Svona árétting til þeirra sem þarna eiga hlut að máli.