Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 1. febrúar 2011 Prenta

Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 24. til 31. jan. 2011.

Nokkur umferðaróhöpp urðu í liðinni viku oftast vegna akstursskilyrða.
Nokkur umferðaróhöpp urðu í liðinni viku oftast vegna akstursskilyrða.

Nokkur umferðaróhöpp urðu í liðinni viku í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Akstursskilyrði voru misjöfn og breyttust á mjög skömmum tíma, lúmsk hálka myndaðist og víða var snjór á vegum.

Þriðjudaginn  25. jan.,hafnaði bifreið á kyrrstæðri bifreið á Sindragötu á Ísafirði, talsvert tjón á ökutækjum. Ökumaður fór á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar. Föstudaginn 28. jan. ,urðu fjögur óhöpp. Bifreið hafnaði út af veginum í Mikladal, milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar. Farþegi í þeim bíl fór á heilsugæslustöðina á Patreksfirði til skoðunar, um minni háttar meiðsl var að ræða. Bifreiðin óökuhæf og flutt af vettvangi með krana. Þá varð bílvelta á Djúpvegi við Reykjanes, þar slapp ökumaður án  meiðsla, en bifreiðin óökuhæf, flutt af vettvangi með krana. Þá varð óhapp á Þumlungsgötu við gamla hraðfrystihúsið á Ísafirði, þar hafnaði jeppi á ljósastaur og utan í kyrrstæðri bifreið, talsvert tjón á ökutækjum og ekki slys á fólki. Fjórða óhappið þennan dag varð síðan þegar bifreið hafnaði á umferðarmerki við gatnamót Mjósunds og Pollgötu.  Minni háttar skemmdir að ræða þar. laugardaginn 29. jan.,varð árekstur á Ásgeirsgötu á Ísafiðri, þar lentu tvær bifreiðar saman, ekki um miklar skemmdir að ræða í því óhapp. Í öllum þessu óhöppum má rekja ástæður óhappanna til akstursskilyrða. 

Lögregla vill enn og aftur brýna fyrir ökumönnum að gæta varúðar og aka varlega og taka tilliti til aðstæðna hverju sinni.

Miðvikudaginn 26. jan., var tilkynnt um reyk frá húsi nr. 23 við Hafnarstræti á Ísafirði. Töluverðan reyk lagði frá húsinu, sem var mannlaust. Slökkvilið og lögregla komu fljótt á staðinn og reyndist vera um bilun að ræða í rafmagni sem orsakaði reykinn.

Mánudaginn 24. jan.,var tilkynnt um slys ofan við heilsugæslustöðina í Bolungarvík. Þar hafði kona hrasað og dottið á höfuðið og  rotast.  Hún var flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar, þar sem gert var að meiðslum hennar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Blandað í steypubílinn.06-09-08.
  • Úlfar og Gulli fara á slöngubátnum út í Agnesi að ná í dráttartóg.
  • Bergistangi við Norðurfjörð-18-08-2004.
  • Sælusker (Selsker)18-04-2008.
Vefumsjón