Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 3. maí 2010
Prenta
Í vikunni sem var að líða var tilkynnt um tvö umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum.Um miðnætti aðfaranótt s.l. föstudags var tilkynnt að jeppabifreið hefði verið ekið utan í vegg í Vestfjarðargöngunum, Önundarfjarðarmegin. Ekki urðu slys á fólki,en talsvert eignartjón,bifreiðina þurfti að fjarlægja með krana,einhverjar tafir urðu á umferð vegna óhappsins,en óverulegar þó.Þá barst tilkynning til lögreglu á föstudag að bíll hefði farið útaf á Steingrímsfjarðarheiði,ekki hefði verið um slys á fólki að ræða og litlar skemmdir.Ökumaður var aðstoðaður við að koma bíl sínum upp á veg.
Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 26. apríl til 3. maí 2010.
13 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í liðinni viku,allir í nágrenni við Hólmavík.Sá sem hraðast ók,var mældur á 132 km/klst.,þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst. Á þessum árstíma er alltaf eitthvað um að grjót hrynji á þjóðvegina og bárust tvær tilkynningar til lögreglu um grjóthrun,önnur var á Djúpvegi,Óshlíðarvegi og hin í Arnarfirði nálægt Mjólkárvirkjun.