Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 5. september 2011 Prenta

Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 29. ágúst til 5. september 2011.

Í liðinni viku voru þrír ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum.
Í liðinni viku voru þrír ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum.

Í liðinni viku voru þrír ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Sá sem hraðast ók mældist á 111 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Þá var einn ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis í vikunni. Sá reyndist heldur ekki vera með gild ökuréttindi. Í vikunni gaf lögreglan ökumönnum sem töluðu í farsíma sérstakan gaum og var einn kærður fyrir að nota ekki handfrjálsan búnað.

Lögreglan óskar eftir vitnum að árekstri sem mun hafa átt sér stað á bifreiðastæði við Brunngötu á Ísafirði. En þá var ekið utan í mannlausa Subaru Legacy bifreið, rauða að lit. Sá er árekstrinum olli gerði ekki vart við sig. Atvikið mun hafa orðið á tímabilinu frá kl.03:00 til 15:00 föstudaginn 26. ágúst sl. Sími lögreglunnar er 450 3730.

Í vikunni var unglingspiltur staðinn að verki við veggjakrot á Ísafirði. Drengurinn mun, með aðstoð föður hans, bæta fyrir gjörðir sínar. Tilkynning um afskipti lögreglunnar af drengnum var jafnframt send til barnaverndaryfirvalda.

Þá lagði lögreglan hald á áfengi hjá tveimur piltum sem ekki höfðu aldur til að meðhöndla slíkt.

Ökumenn eru hvattir til að huga vel að ljósabúnaði bifreiða sinna, ekki síst í ljósi þess að nú er farið að skyggja.
Segir í tilkynningu lögreglu á Vestfjörðum.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Litla-Ávík 31-10-2007.
  • Byrjað að reisa húsið.27-10-08.
  • Gengið upp Sýrárdal.
  • Kaupfélagshúsin og Íbúðir á Norðurfirði-06-07-2004.
  • Byrjaðað jafna brunarústir við jörðu 19-06-2008.
Vefumsjón