Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 11. febrúar 2013 Prenta

Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 4. til 11. febrúar 2013.

Lögreglan vill minna ökumenn á að stilla ökuhraða í hóf, tala ekki í farsíma án handfrjáls búnaðar og hafa öryggisbelti ávalt spennt.
Lögreglan vill minna ökumenn á að stilla ökuhraða í hóf, tala ekki í farsíma án handfrjáls búnaðar og hafa öryggisbelti ávalt spennt.
Tveir ökumenn voru kærðir í liðinni viku fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Var þetta annars vegar á Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði og hins vegar á Aðalgötu í Súðavík.Tvær tilkynningar bárust lögreglunni á Vestfjörðum er varðar eignaspjöll sem unnin voru á jafnmörgum bifreiðum. Önnur þeirra stóð mannlaus við Traðarland í Bolungarvík þann 8. febrúar sl. Atvikið gæti hafa gerst aðfaranótt 9. s.m. Svo virðist sem grjóti hafi verið kastað í bifreiðina,sem er svört Mazda. Í hinu tilvikinu var um að ræða ljósgráa Chryslerbifreið sem stóð mannlaus á bryggjunni skammt frá Pollgötu á Ísafirði milli kl.02:00 og 03:00 aðfaranótt 10. febrúar sl. En svo virðist sem einhver hafi beyglað bifreiðina á tveimur stöðum. Þeir sem hafa einhverja vitneskju um þessi eignaspjöll eru hvattir til að hafa samband við lögregluna í síma 450 3730. Að morgni 4. febrúar fékk fiskibátur á sig brotsjó í mynni Ísafjarðardjúps. Rúður brotnuðu í stýrishúsi og siglingatæki hættu að virka. Þrír voru í áhöfn bátsins en þá sakaði ekki. Skipstjóra tókst að stýra bátnum heilu og höldnu til hafnar í Bolungarvík. Þann 7. febrúar varð vinnuslys í verksmiðju á Bíldudal er starfsmaður klemmdist á hendi í vél. Meiðsli urðu ekki eins mikil og talið var í fyrstu.

Tilkynnt var um fjögur umferðaróhöpp í liðinni viku. Um var að ræða bílveltu á Steingrímsfjarðarheiði snemma morguns þann 7. En þá rann bifreið út af veginum og valt. Tjón varð lítið og ökumann,sem var einn í bifreiðinni,sakaði ekki. Þann 5. febrúar varð árekstur með tveimur bifreiðum í miðbæ Ísafjarðar. Báðar bifreiðarnar urðu óökufærar eftir áreksturinn en ökumenn sakaði ekki. Þann 9. febrúar var bifreið ekið yfir grjót sem hafði runnið úr Raknadalshlíð,í Patreksfirði,og á veginn. Tveir hjólbarðar undir bifreiðinni eyðilögðust. Ökumann sakaði ekki. Þann 4. febrúar var ekið á mannlausa bifreið á bifreiðastæði í miðbæ Ísafjarðar. Heiðarlegur og samviskusamur ökumaður tilkynnti atvikið til lögreglunnar og var eiganda gert viðvart. Í vikunni voru tveir ökumenn kærðir fyrir að tala í farsíma á ferð,án þess að nota handfrjálsan búnað. Í báðum tilvikum var um að ræða ökumenn sem óku um götur Ísafjarðar. Í öðru tilvikinu stöðvaði ökumaðurinn ekki við stöðvunarskyldu og má hann því búast við sektum vegna tveggja umferðarlagabrota,eða alls kr. 20.000 auk tveggja punkta í ökuferilskrá. Dýrt símtal það. Tveir fullorðnir karlmenn voru staðnir að gripdeild í matvöruverslun á Ísafirði í vikunni. Þeir voru handteknir og færðir í fangaklefa,enda mjög ölvaðir. Þeir voru látnir sofa úr sér áfengisvímuna. Mega þeir búast við að hljóta refsingu fyrir þetta brot.

Lögreglan vill minna ökumenn á að stilla ökuhraða í hóf, tala ekki í farsíma án handfrjáls búnaðar og hafa öryggisbelti ávalt spennt. Sömuleiðis eru farþegar hvattir til að hafa öryggisbelti ávalt spennt. Rétt er að benda á að ökumaður sem lætur undir höfuð leggjast að sjá til þess að farþegar yngri en 15 ára hafi öryggisbelti spennt hljóta sektina.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Einn flotinn er komin vestur fyrir Lambanesið.
  • Borgarísjakabrot útaf Lambanesi 16-09-2003.
  • Úr eldhúsi fólkið sem ber fram mat og þjónar til borðs.
  • SV hlið eldhúsmegin,SV hlið lokið.18-12-2008.
  • Þá fer langa súlan út.
  • Sumt þarf að flytja í traktorsskóflum.06-09-08.
Vefumsjón