Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum 02. til 09. júní 2014.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku fyrra atvikið var þegar bifreið var ekið á ljósastaur á Skutulsfjarðarbraut, ekki slys á fólki. Þá var einnig ekið utan í kyrrstæða bifreið á bifreiðastæðinu við Kaupfélagið á Hólmavík, um minniháttar skemmdir var að ræða. Tuttugu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku í umdæminu, tólf í og við Ísafjarðarbæ og átta í nágrenni Hólmavíkur. Sá sem hraðast ók, var mældur á 136 km/klst, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Föstudaginn 6. júní var tilkynnt um eld í vélbátnum Jónínu Brynju Í.S. þar sem báturinn var á Aðalvík, vestan við Straumnes. Gerðar voru viðeigandi ráðstafanir og nærstaddur bátur kom til aðstoðar. Fljótlega náðist að ráða niðurlögum elds í vélarúmi og var báturinn dreginn til hafnar.
Rétt fyrir miðnætti á sunnudagskvöld var tilkynnt um tvær stúlkur sem höfðu farið í fjallgöngu og farið upp Kubbann inn í Skutulsfirði og lent þar í vandræðum, önnur stúlkan hafði snúið sig á fæti og gat ekki haldið áfram . Kallaðar voru út björgunarsveitir til aðstoðar og var verkinu lokið um kl. 06:00 á sunnudagsmorgun. Stúlkan var flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar.
Skemmtanahald var víða í umdæminu um liðna helgi, hvítasunnuhelgina og margir á ferðinni. Á Patreksfirði var haldin hin árlega Skjaldborgarhátíð og fór skemmtanahald nokkuð vel fram og án teljandi afskipta lögreglu.