Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 18. febrúar 2014
Prenta
Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum 10.feb til 17.feb.2014.
Í liðinni viku voru níu ökumenn ákærðir fyrir of hraðan akstur á norður svæði Vestfjarða í Bolungarvíkurgöngum,Vestfjarðagöngum og í Skutulsfirði. Sá sem hraðast ók var mældur á 93 km/klst,þar sem leyfilegur hámarkshraði er 70 km/klst. Þá voru höfð afskipti af nokkrum ökumönnum vegna lagningamála. Talsverður erill var hjá lögreglu um liðna helgi vegna skemmtanahalds. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.
litlihjalli@litlihjalli.is