Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 14. janúar 2014 Prenta

Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum 6. jan til 13. jan. 2014.

Lögreglan hvetur ökumenn vélsleða til að haga akstri og flutningi þessara tækja í samræmi við lög og reglur.
Lögreglan hvetur ökumenn vélsleða til að haga akstri og flutningi þessara tækja í samræmi við lög og reglur.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu í liðinni viku, um var að ræða bílveltu á Flateyrarvegi þar sem fólksflutningabifreið rann út af veginum. Ekki slys á fólki. Aðfaranótt sunnudags var ekið á gangandi vegfaranda á Strandgötu á Patreksfirði. Hinn slasaði var fluttur með þyrlu LHG á Háskólasjúkrahús, slysadeild í Reykjavík til skoðunar. Hann hlaut alvarlega áverka en þó ekki lífshættulega. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni en ökumaður er grunaður um ölvun við akstur. Ástæða er til að benda hlutaðeigandi aðilum á að akstur vélsleða í þéttbýli er ekki leyfilegur enda eru þessi ökutæki flokkuð sem torfærutæki. Talsvert hefur borðið á því að ökumenn virði ekki þessar reglur. 

Lögreglan hvetur ökumenn vélsleða til að haga akstri og flutningi þessara tækja í samræmi við lög og reglur. Enn og aftur vill lögregla benda gangandi sem og hjólandi vegfarendum á að nota endurskinsmerki, oft er þörf en nú er nauðsyn.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Kort Árneshreppur.
  • Allt sett í stóra holu.
  • Ágústa og Þórólfur í Sparisjóðnum.
Vefumsjón