Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 23. apríl 2018
Prenta
Vortónleikar Kórs Átthafélags Strandamanna.
Vortónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna verða haldnir í Árbæjarkirkju sunnudaginn 29. apríl kl. 15.00. Dagskráin er mjög létt og skemmtileg. Þar sem kórinn er að fara í söngferð til Ítalíu í júní eru nokkur ítölsk lög á efnisskránni. Gaman er líka að segja frá því kórinn verður 60 ára á þessu ári og af því tilefni verður boðið upp á afmælisköku í tónleikahléinu. Stjórnandi: Agota Joó Píanó: Vilberg Viggósson Miðaverð við innganginn er 3.500 fyrir fullorðna og frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Miðaverð í forsölu er 3.000. Vinsamlegast hafið samband við Gíslínu(699-8859), Ragnheiði (616-3148) eða aðra kórfélaga til að fá miða í forsölu . Forsölu líkur föstudaginn 27. apríl