Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 22. apríl 2019
Prenta
Vortónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna.
Vortónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna
verða haldnir í Árbæjarkirkju sunnudaginn 28. Apríl kl. 15
Létt og skemmtilegt prógram með hljómsveit og nokkrir kórfélagar syngja einsöng, svo óhætt er að lofa góðri skemmtun.
Stjórnandi: Ágota Joó
Píanó: Vilberg Viggósson
Miðaverð við innganginn er 3500 kr. fyrir fullorðna og frítt fyrir börn 14 ára og yngri.
Miðaverð í forsölu er 3000 kr.
Þær sem sjá um forsöluna eru:
Gíslína Gunnsteinsdóttir - sími 699 8859
Og Ragnheiður Thoroddsen – sími 616 3148